Umsagnir
Here is what my clients have to say
★★★★★
Ása sá alfarið um hönnun vörumerkisins Fönn Ráðgjöf, þar á meðal brand guide, lógó, litaval, leturgerð og uppsetningu á vefsíðu. Það er einstaklega gott að vinna með Ásu, hún er fagmannleg, fljót að átta sig á um hvað málið snýst og setur hönnunina í skýrt samhengi við markmið og væntingar viðskiptavina sinna. Ég var sjálf með frekar óljósar hugmyndir um hvernig vörumerkið ætti að líta út og skipti oft um skoðun á meðan á ferlinu stóð. Ása sýndi mikla þolinmæði, hlustaði vel, spurði réttu spurninganna, og fann lausnir. Útkoman uppfyllti allar mínar væntingar og endurspeglar það sem Fönn Ráðgjöf stendur fyrir. Ég gæti ekki verið ánægðari með útkomuna og hlakka mikið til að vinna með henni aftur.
— Sandra Mjöll, Fönn Consulting ehf.
★★★★★
"Ása hannaði vefsíðuna mína og gerði ótrúlega vel. Hún kom með frábærar hugmyndir, var mjög fagmannleg og ótrúlega hjálpsöm í gegnum allt ferlið. Ótrúlega skapandi og nákvæm sem skipti ótrúlega miku máli í lokaniðurstöðunni. Ég mæli eindregið með henni."
— Ingunn, Innanhússhönnuður & stílisti, IB Interior
★★★★★
„Ása hefur hannað fyrir mig bæði Lotusþjálfun og Tónar lífsins og staðið sig framúrskarandi í báðum verkefnum. Hún er einstaklega hugmyndarík, kemur með skýrar og skapandi lausnir og sér tækifæri sem styrkja heildarmyndina og vörumerkið.
Samskiptin eru skilvirk og fagleg, hún bregst hratt við og heldur utan um ferlið af öryggi og festu. Það er einfaldlega frábært að vinna með Ásu og ég mæli eindregið með henni til þeirra sem vilja sterka, vandaða og faglega vefhönnun.“
— Ingunn Ragna Sævarsdóttir, Lotus Þjálfun & Tónar Lífsins
★★★★★
„Það er mjög gott að vinna með Ásu. Hún metnaðarfull, lausnamiðuð og nákvæm. Svo er hún líka harðdugleg og sjálfstæð í vinnubrögðum.“
— Hrefna, verkefnastjóri hjá Fjármálaráðuneyti Ríkisins
★★★★★
„Ása er mjög fagmannleg og kom með margar góðar hugmyndir. Það var ánægjulegt og gott að vinna með henni.“
— Sölvi Már, Nærandi Líf
★★★★★
„Ég bað um nafnspjald og var mjög ánægð með útkomuna. Ég hafði þrjá möguleika til að velja úr og ef það var eitthvað sem ég vildi öðruvísi þá var það ekkert mál. Fljótleg og góð vinna frá Ásu. Ég mæli með vinnu hennar.“
— Kata, Sprey Hárstofa
★★★★★
„Ása er frábær í því sem hún gerir og ég get mælt 100% með henni! Hún hannaði merki fyrir hárgreiðslustofuna okkar. Við erum mjög ánægð með útkomuna og þökkum fyrir frábæra þjónustu.“
— Katrín, Primadonna Hársnyrtistofa
★★★★★
"Ótrúlega ánægð með þjónustuna sem ég fékk hjá Ásu, Mæli með 100%"
— Sara, Purkhús
★★★★★
„Ég er mjög ánægð með vinnu Ásu! Hún hannaði logo fyrir fyrirtækið mitt og gerði það ótrúlega vel! Mæli með.
— Inga, Adell



